17/06/2025

Finland

Ævinám, Nám fullorðinna fullorðinsfræðsla

6 min.

„Nú veit ég hvar varadekkið er“ – finnskar konur standa í röðum til að læra meira um neyðarviðbúnað

Þegar Nina Ahtola skipti um dekk á VW-rútu á neyðarviðbúnaðarnámskeiði fyrir konur var það í fyrsta – en ekki í síðasta skipti. „Sem kona vilt þú geta þetta,“ segir hún.

Grupp i militärkläder och lila mössor sätter upp tält i en skog vid solnedgång.

Þátttakendur tjalda tjaldi með kamínu sem hluta af verklegum æfingum námskeiðsins. Ljósmyndari: Nina Ahtola

Þegar Nina Ahtola skipti um dekk á VW-rútu á neyðarviðbúnaðarnámskeiði fyrir konur var það í fyrsta skipti – en ekki í síðasta skipti. (OBS denne setningen er gjentatt – i den svenske teksten, skal det være slik?)

„Sem kona vilt þú geta þetta,“ segir hún.

Nina Ahtola och Jennifer Ahtola
Ahtola systur tileinka sér færni til að takast á við kreppuástand. Ljósmyndari: Nina Ahtola

Hún tók ásamt systur sinni Jennifer Ahtola þátt í vinsælu námskeiði sem skipulagt var af Samtökum kvenna um viðbrögð gegn vá. Biðlistinn er langur, þar sem margar finnskar konur vilja styrkja færni sína við að takast á við kreppuástand.

Þegar systurnar Jennifer og Nina Ahtola skráðu sig í þriggja daga neyðarviðbúnaðarnámskeið í september 2023 vissu þær ekki alveg hvað þær voru að fara út í. En það var freistandi – fjölmennar kvennabúðir, verklegt nám og tækifæri til að fara út fyrir þægindarammann.

– Þetta hljómaði öðruvísi, eins og eitthvað alveg nýtt. Ég vissi ekki við hverju ég átti að búast en það veitti góða tilfinningu að þetta væri bara fyrir konur. Ég vildi reyna eitthvað sem ég hafði aldrei gert áður, segir Jennifer Ahtola, kennari og býr í Karis.

Nina Ahtola er rafrænn leiðbeinandi við starfsnám hjá Axxell og hún leit á námskeiðið sem tækifæri til að reyna eitthvað sem hún hafði lengi verið spennt fyrir.

– Ég hefði viljað gegna herþjónustu eða verða lögreglumaður en lífið tók mig aðra leið. Mér fannst þetta kannski leið til að prófa eitthvað áþekkt – en í öruggu og vernduðu umhverfi.

Námskeiðin njóta vinsælda á við heitar lummur

Námskeiðið var svokallað „almennt undirbúningsnámskeið“, eitt af mörgum innan ramma NASTA, sem er eitt hugtaka Neyðarviðbúnaðarsamtökum kvenna. Finnska skammstöfunin vísar gróflega til merkingar finnsku orðanna fyrir konu og að hafa gaman (nainen, nastaa). Þjálfunin er ætluð konum á öllum aldri, án kröfu um forþekkingu eða aðild að einhverjum samtökum.

Sé vefsíða félagsins heimsótt mætir maður finnska orðinu „täynnä“, sem þýðir fullmannað eða uppselt á öll námskeið.

Áherslan er lögð á þrjú þemu: að efla persónulega þekkingu og færni einstaklingsins, að geta stutt yfirvöld á krepputímum og að skilja verkefni sem tengjast hernaðarvörnum.

Hversdagslegt öryggi í herklæðum

– Við vorum í herklæðum, gistum í tjöldum alla helgina, tjölduðum þeim sjálfar og skiptum okkur í hópa. Hver tekur stjórnina? Hver vill leiða? Það var mjög fróðlegt að sjá hvernig hlutverkin skipuðust, segir Nina Ahtola, sem deildi stóru tjaldi með kamínu og átta öðrum konum.

Námskeiðið var haldið á hernaðarsvæði Nylands-hersveitarinnar, í Dragsvik-herstöðinni í suðurhluta Finnlands, þar sem fjölhæfir strandhermenn eru þjálfaðir. Jennifer Ahtola viðurkennir að umhverfið hafi stuðlað að ríkilegum innblæstri.

– Maður varð í raun mjög spenntur við komuna á svæðið. Varð eiginlega ekki raunverulegt fyrr en maður var kominn þangað. Ég hef velt fyrir mér hvort stríð eða kreppa gæti skollið á, og þá myndi daglegt líf breytast hratt. Að fá að æfa það sem er nauðsynlegt heima – rafmagn, vatn, mat – veitti mér tilfinningu fyrir að ég væri betur undirbúin.

En lång rad personer i militäruniform och lila mössor marscherar utomhus vid en kasern.
Þátttakendur á námskeiðinu á leið um hernaðarsvæðið í suðurhluta Finnlands á undirbúningsnámskeiði. Ljósmyndari: Nina Ahtola
Två skålar med pennepasta hålls av personer i militäruniform, en hand rör om med plastgaffel.
Matur fyrir neyðarástand útbúinn í náttúrunni. Ljósmyndari: Nina Ahtola

Lærði hvar varadekkið er

Námskeiðshelgin var ögrandi. Á dagskránni var: skyndihjálp, slökkvistarf, sjálfsvörn í ógnandi aðstæðum – og viðhald bíla. Aðrir þátttakendur tóku sérstök námskeið í netöryggi og björgun á sjó.

Nina Ahtola lýsir mörgum færniþáttum sem hluta hversdagslegrar þekkingar sem allir þurfa að búa yfir þótt stríð sé ekki yfirvofandi.

– Sem kona var gott að læra að skipta um dekk í öruggu umhverfi. Bræður mínir og pabbi hafa hjálpað mér áður, en á einhverjum tímapunkti sagði hann: nú verður þú að fara að standa þig sjálf. Og þökk sé námskeiðinu vissi ég hvar varadekkið var þegar ég keypti mér minn eigin sendibíl nokkru síðar. Það var þess virði að fara í gegnum allt námskeiðið.

Þátttakendur þurftu einnig að taka þátt í slysavarnaþjálfun, eins og rafmagnshlaupahjólreiðaárekstri í skóginum, og æfa sig í að öskra og hlaupa – með öðrum orðum taka þátt í „einfaldri varnaraðgerð“ við ógnandi aðstæður.

Jennifer kunni að meta æfingarnar en kallar eftir frekari líkamlegum áskorunum ef hún myndi taka þátt í öðru námskeiði síðar.

– Jú, það hét námskeið í að lifa af, en maturinn kom í plastpokum. Ég hefði kosið aðeins meiri óbyggðir og minni þjónustu. En það var samt lærdómsríkt.

Öruggt og ánægjulegt námsumhverfi

Einn stærsti kosturinn við námskeiðið, að sögn beggja systranna, var notalegt námsumhverfi og hláturmildur hópur jafninga.

– Maður lætur ekki blekkjast. Allir eru á sama punkti í byrjun, óháð bakgrunni. Þar var fólk á aldrinum 19 til 70 ára, og allt frá arkitektum og kennurum til fatahönnuða. Allir voru eins fötum – svolítið óhrein eftir þrjá daga úti, en jafngild. Hégómagirnin hvarf út í buskann, hlær Nina Ahtola.

Þar að auki fólst ákveðin frelsun í að vera heila helgi án samfélagsmiðla.

– Ég notaði varla símann minn. Það var svo notalegt. Maður var alveg sokkinn í það sem var að gerast þarna.

Jennifer Ahtola er sammála.

– Þetta var hlé frá daglegu lífi. Námskeið eins og þetta veitir manni yfirsýn og minnir mann á hvað skiptir máli. Maður útbýr kannski ekki allan 72 tíma neyðarviðbúnaðinn þegar maður kemur heim – en maður hugsar um hann vegna þess að maður hefur verið minntur á hann.

Langar að læra eitthvað nýtt alla ævi

Två personer i militäruniform tränar självförsvar i en skog med andra deltagare i bakgrunden.
Jennifer og Nina Ahtola reyna nýja færni á námskeiði í neyðarviðbúnaði. Ljósmyndari: Nina Ahtola

Systurnar eru báðar vanar að sinna símenntun. Jennifer hefur tekið námskeið í útikennslu og sótt innblástur frá samstarfsmönnum með reynslu af óbyggðum. Nina hefur breiðan bakgrunn í ljósmyndun, er menntaður ljósmyndari, hefur rekið fyrirtæki, lært auglýsingaljósmyndun og hefur einnig öðlast kennsluréttindi fyrir starfsnám. Hún stundar nú meistaranám í ljósmyndun. Á sama tíma nýtur hún þess að taka þátt í  námskeiðum sem í boði eru hjá Símenntunarmiðstöðinni í  heimaborg hennar, Åbo. Nú eru það hnefaleikar. Námskeiðin eru ódýr, sem hún telur vera afgerandi þátt í því að geta tekið þátt reglulega. Hún sækir líka oft ýmis vefnámskeið.

– Mér finnst það ótrúlegt að maður geti lært hluti alla ævi. Það er svo margt skemmtilegt og áhugavert. Vegna þess að ég sit fyrir framan skjá allan daginn – þá er þetta fullkomin viðbót.

Veitti mér óvænta uppgötvun

Jennifer Ahtola lítur á námskeiðið sem hún tók sem góða áminningu um mikilvægi undirbúnings. Systurnar viðurkenna samt að þær hafi ekki verið algerir nýgræðingar þegar þær komu á vettvang. Á æskuheimili þeirra voru fleiri systkini og foreldrar þeirra hafa alltaf verið áhugasamir um að miðla þekkingu sinni. Í henni fólst einnig það sem nú er skilgreint sem færni í viðbúnaði á krepputímum.

Jennifer Ahtola telur að námskeiðið hafi samt sem áður vakið umhugsun og hjálpað til við að koma óvirkri þekkingu upp á yfirborðið.

– Þegar maður er þarna á staðnum verður maður meðvitaðri. Ég hugsaði reyndar að ég ætti að uppfæra viðbragðskassann heima. Nú ríkir ekki kreppa, svo það þarf að minna mann á þessa hluti.

– Ég finn mig reyndar aðeins öruggari núna. Og ég mæli virkilega með námskeiðinu fyrir allar konur, óháð bakgrunni. Þetta er fróðlegt og mjög skemmtilegt, segir Nina Ahtola.

Samtök finnskra kvenna um viðbrögð gegn vá

  • Samtök finnskra kvenna um viðbrögð geng vá voru stofnuð árið 1997 til að efla tækifæri finnskra kvenna til að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi tengdu varnarmálum.
  • Grunnhugmyndin er að þróa einstaklingsbundinn viðbúnað gegn neyðarástandi með fræðslu. Með því að styrkja öryggis- og viðbúnaðarhæfni kvenna, sérstaklega, er einnig öll þjóðin styrkt.
  • Samtökin skipuleggja námskeið, helgaræfingar og vefnámskeið. Fræðslan er opin öllum konum. Karlar eru einnig velkomnir á vefnámskeiðin.
  • Flest námskeiðin eru grunnnámskeið þar sem hægt er að taka þátt án forþekkingar.
  • Áherslan er lögð á að styrkja öryggishæfni í daglegu lífi, en þjálfunin þróar einnig færni til að bregðast við ófriðaraðstæðum.
  • Meiri hluti þjálfunarinnar er skipulögð í samstarfi við finnska varnarherinn.

Nyeste artikler fra NLL

En person i skyddskläder moppar golvet i en ren arbetsmiljö med blå dörr, arbetsvagn och förvaringsskåp.

29/06/2026

Sverige

4 min.

Städbranschen skriker efter folk, samtidigt som många är långtidsarbetslösa. I Sandviken i Sverige har man fått fler i arbete genom en satsning på systematisk validering.

En mann holder en presentasjon foran en stor skjerm med teksten «Vision», mens en person sitter og ser på i et møterom.

23/06/2026

Norden

3 min.

“Learning Circles are an important ‘piece of the puzzle’ in everyday learning in the workplace,” says Martin Sinclair, competence development manager in Social Administration in Jönköping municipality.

Borgere og en konsulent sidder sammen ved et bord med en bærbar computer og arbejder med opgaver på en arbejdsplads.

22/06/2026

Danmark

5 min.

I fem år har Aarhus Kommune arbejdet med virksomhedsøvebaner for at støtte borgere, som er langt væk fra arbejdsmarkedet i at komme i job. Med øvebanerne flytter man indsatsen ud på arbejdspladserne.

Share This