29/01/2025

Finland

Lýðræði, Menntastefna, Ævinám

6 min.

Finnar telja menntun mikilvægan þátt í viðnámi við kreppu og til að efla seiglu er þeir gegna formennsku árið 2025

Undirbúningur fyrir formennsku Finnlands í Norrænu ráðherranefndinni árið 2025 stendur nú sem hæst. Ulla-Jill Karlsson og Sini Keinonen starfa báðar við finnska mennta- og menningarmálaráðuneytið og greina frá áætlunum á því sviði. Megnin viðfangsefnin snúi að aðgerðum er varða menntun og nám fullorðinna.

Ulla-Jill Karlsson

Ulla-Jill Karlsson við mennta- og menningarmálaráðuneyti Finnlands kann að meta langt og gott samstarf sem hún hefur átt við NVL.

– Undirbúningurinn hefur gengið vel. Fyrir liggur á hvað áhersla verður lögð en um leið er ætlunin að tryggja samfellu við norrænt samstarf fram til þessa. Haldið verður áfram þar sem frá var horfið á formennskutímabili Svía og  sama leið haldin snurðulaust.

Þetta segir Ulla-Jill Karlsson, starfsmaður í finnska mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Sini Keinonen frá sama ráðuneyti vinnur að samræmingu áætlunarinnar.

– Við höfum lagt áherslu á að skipuleggja yfirgripsmikla viðburði sem sameina breiðan vettvang menntageirans og tengja hann jafnframt menningargeira og æskulýðsstefnu.

Sini Keinonen
Sini Keinonen samhæfir menntaáætlun formennskuársins. Hún starfaði áður hjá Norrænu ráðherranefndinni sem aðalráðgjafi á sviði menntamála. 

Megin áhersla á seiglu og viðbúnaði við kreppu

Formennska Finna verður alhliða í samvinnu við landsstjórn Álandseyja. Aðalspurningarnar eru nokkuð augljósar og sjálfgefnar vegna ástands heimsins (hér má lesa formennskuáætlunina fyrir árið 2025).

– Núverandi staða heimsmála gerir kröfu um að á öllum sviðum innan Norrænu ráðherranefndarinnar verði lögð áhersla á viðbúnað, lýðræði og seiglu. Áþreifanlegt dæmi er haustráðstefna um fjölmiðlalæsi og lýðræðisfræðslu sem einnig varðar þessi mál, útskýrir Ulla-Jill Karlsson.

Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að allir borgarar, og þá sérstaklega ungt fólk, fái góða þjálfun í grunnleikni og menntun og fái jafnframt stuðning við að þróa gagnrýna hugsun.

– Þetta er mikilvægur þáttur í forvarnastarfi okkar þegar kemur að viðbúnaði við áföllum. Brýn þörf er á að samfélagið virki á eins eðlilegan máta og hægt er, jafnvel í kreppuástandi, eins og kom skýrt í ljós í heimsfaraldrinum. Öryggið sem menntun veitir og samfélagið sem þú ert hluti af gegna mikilvægu hlutverki á tímum kreppu.

Menntun ein forsenda seiglu

Ulla-Jill Karlsson leggur einnig áherslu á mikilvægi þess að í hverju landi sé sérhæft vinnuafl fyrir hendi sem og vel menntaðir og hæfir íbúar. Þetta sé forsenda þess að samfélagið virki á öruggan hátt jafnvel í kreppuástandi. – Í upplýsingasamfélögum nútímans er hlutverk háskólamenntunar miðlægt en við þurfum líka fólk sem sér um alla þá þjónustu sem þarf til að samfélagið sé starfshæft og þar gegnir starfsmenntun mikilvægu hlutverki. Allt tengist þetta vellíðan, seiglu og allt styður hvert annað.

Geirarnir vinna saman

Sini Keinonen tekur á afar fjölbreyttan hátt þátt í alþjóðlegu samstarfi. Hún situr jafnframt í norrænu embættismannanefndinni um menntun og rannsóknir. Á þeim grundvelli vinnur hún að  samhæfingu starfsemi sem tengist formennskunni á sviðum ráðuneytanna þriggja, mennta-, menningar- og rannsókna.

Sjálf hefur hún mismunandi væntingar varðandi formennskuár Finna.

– Ég vona að við getum hrint í framkvæmd nýrri norrænni samstarfsáætlun, sem hefur verið mótuð fyrir tímabilið 2025–2030. Markmiðið er að efla samfellu og framsýni í norrænu samstarfi.

Menntun og hreyfanleiki á Norðurlöndum

Ulla-Jill Karlsson vísar til örra breytingar á heimi okkar. Við slíkar aðstæður er brýnt að menntakerfi okkar leiði til þróunar á þeirri færni sem krafist er.

– Við viljum tryggja að ungt fólk hljóti grunnmenntun og að námið sé öruggt. PISA kannanir sýna að færni í læsi, stærðfræði og náttúrufræði fer þverrandi á Norðurlöndunum, sem er áhyggjuefni.

Í því samhengi bendir hún einnig á mikilvægi grunnleikni fullorðinna og nefnir hún um leið þá samfelldu vinnu sem NVL vinnur til að styðja við þá þróun.

Áfram verður samstarf við hið nýja NLL  

Ulla-Jill Karlsson hlakkar til áframhaldandi góðs samstarfs árið 2025 við nýtt NLL, sem er skammstöfun fyrir Nordisk Netværk for Livslang Læring.

– Hefðin hefur verið sú að við höfum alltaf staðið að tilteknum viðburði í samstarfi við NVL á formennskutímabilum Finna.

Hún segir hlutverk NVL í eflingu símenntunar hafa skipt sköpum á margan hátt. Að sögn Karlsson hefur tengslanetið með starfsfólkinu starfað eftir sveigjanlegu líkani sem gerir því kleift að bregðast hratt við og virkja ólíka aðila til samstarfs.

Í evrópsku samhengi er NVL norrænt flaggskip. Ég hef fylgst með þróun NVL allt frá upphafi. Starfsemin er að óvenjulegu en virku líkani.

Eigin væntingar

Miklar væntingar eru ríkjandi til formennskuársins. Sini Keinonen segist telja að það verði spennandi að fylgjast með því hvernig hið nýja NLL komi til með að starfa áfram með endurnýjuðu umboði.

– Ég vona líka að áætlun okkar veki áhuga og sé aðlaðandi fyrir marga, þó það sé reyndar mikið um að vera og að úrval viðburða sé almennt mikið, segir Ulla-Jill Karlsson að lokum.

Báðar vilja þær sérstaklega leggja áherslu á norræna tungumálamálþingið sem haldið verður 1. apríl á Hanaholmen í Finnlandi í byrjun árs 2025.  Opnað hefur verið fyrir skráningu á það.

Nokkur atriði í áætluninni fyrir 2025

  • Málþing um Norræn tungumál á Hanaholmen: Málþingið ber yfirskriftina: Getur stafræn væðing bjargað norrænum málskilningi? Á málþinginu verður fjallað um yfirlýsingu um norræna málstefnu, stafræna væðingu í tungumálakennslu og hvernig má efla tungumálin sem fæstir tala á Norðurlöndum með aðstoð máltækni. Markhópurinn eru norrænir aðilar sem vinna að málefnum tungumála og norrænu samstarfi.

    Málþingið verður haldið þann 1. apríl 2025. Nánari upplýsingar og krækja í skráningu hér
  • Ráðstefna um fjölmiðlalæsi og lýðræðisfræðslu: Stefnt er að því að halda ráðstefnu með víðara sjónarhorni haustið 2025 með þátttöku ráðuneytisins.

    Ráðstefnan er skipulögð í samvinnu við finnsku stofnun nýsitækja, sænska menntamálastofnunina, Norrænu menningargáttina og Nordisk Netværk for Livslang Læring (NLL).
  • Fundur sérfræðinga um græn umskipti. Stefnumótunarsmiðja um færniframboð fyrir græn umskipti á Norðurlöndum, verður haldin í október 2025. Hún fer fram í samstarfi við Norrænu embættismannanefndina um menntun og rannsóknir og Norrænu embættismannanefndina um atvinnulífið.

Nyeste artikler fra NLL

En person i skyddskläder moppar golvet i en ren arbetsmiljö med blå dörr, arbetsvagn och förvaringsskåp.

29/06/2026

Sverige

4 min.

Städbranschen skriker efter folk, samtidigt som många är långtidsarbetslösa. I Sandviken i Sverige har man fått fler i arbete genom en satsning på systematisk validering.

En mann holder en presentasjon foran en stor skjerm med teksten «Vision», mens en person sitter og ser på i et møterom.

23/06/2026

Norden

3 min.

“Learning Circles are an important ‘piece of the puzzle’ in everyday learning in the workplace,” says Martin Sinclair, competence development manager in Social Administration in Jönköping municipality.

Borgere og en konsulent sidder sammen ved et bord med en bærbar computer og arbejder med opgaver på en arbejdsplads.

22/06/2026

Danmark

5 min.

I fem år har Aarhus Kommune arbejdet med virksomhedsøvebaner for at støtte borgere, som er langt væk fra arbejdsmarkedet i at komme i job. Med øvebanerne flytter man indsatsen ud på arbejdspladserne.

Share This