Yfirgripsmikil rannsóknarspurning verkefnisins er: Hvernig geta staðbundnir norrænir vinnumarkaðir á afskekktum svæðum aðlagað sig að breytingum af völdum alþjóðlegrar langtíma þróunar á mörgum sviðum, eða s.k. „megatrends“ (megin straumum), og jafnframt skapað sjálfbæran markað fyrir vinnuafl?
SUNREM er þverfaglegt rannsóknarverkefni sem felst í rannsóknum á sjö aðskildum afskekktum stöðum á Norðurlöndum: Álandseyjum, Dalvík og Húsavík á Íslandi, Skellefteå og Gotlandi í Svíþjóð og Stord og Hammerfest í Noregi. Þessi svæði voru valin vegna einstakra einkenna og mismunandi áhrifa vegna alþjóðlegrar þróunar, sérstaklega grænna umskipta. Auk þess að niðurstöðurnar verði kynntar í formi vísindalegra rita og stefnumótunartillagna er einnig mikilvægt að skapa þátttöku í nærsamfélaginu með verkefninu.
Afskekktir vinnumarkaðir eru oft skilgreindir sem svæði sem eru í að minnsta kosti 45 mínútna fjarlægð frá næstu borg með að minnsta kosti 50.000 íbúa (Dijkstra & Poelman, 2008). Auk fjarlægðar frá borgum einkennast afskekktir vinnumarkaðir oft af því að þeir eru háðir einni eða fáum atvinnugreinum og/eða vinnuveitendum (Norlén o.fl., 2022). Þar að auki einkennast þessi svæði af ósamræmi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli. Vegna viðkvæmrar stöðu afskekktra vinnumarkaða er mikilvægt að hafa þekkingu og verkfæri til að takast á við óvissuna sem hnattræn þróun hefur í för með sér.
„Þessi tegund norræns samstarfs er afar gagnleg,“ segir Anna Lundgren, verkefnastjóri frá Nordregio. „Hjálpar okkur að skilja samhengið á vettvangi og stuðlar að miðlun þekkingar og bestu starfshátta þvert á landamæri.“Þótt útgáfa lokaskýrslu sé ekki áætluð fyrr en 2026 getur ÅSUB þegar staðfest að þróunarferlið (megatrends) skapar bæði áskoranir og tækifæri. Til þess að afskekktir vinnumarkaðir geti aðlagað sig að þessum umskiptum þarf verkfæri og þekkingu til að takast á við óvissu. Að auki geta áhrifin verið af mismunandi stærðargráðu. Til dæmis hafa lýðfræðilegar breytingar sýnt meiri efnahagsleg áhrif samanborið við hnattvæðingu í líkönum á ESB-stigi (Modelling the impacts of megatrends, 2022). Frekari rannsókna er þörf á áhrifum „megatrenda“ á vinnumarkaðinn á Álandseyjum.



