16/06/2026

Sverige

Alþýðufræðsla, Menntastefna

Sjaldan brýnni þörf fyrir alþýðufræðslu en fyrr – en niðurskurður er óumflýjanlegur

Í árlegri heildarúttekt Alþýðufræðsluráðsins kemur fram að skilyrði alþýðufræðslu hafi breyst á síðasta áratug. Þörfin fyrir alþýðufræðslu er meiri en verið hefur um langt skeið, en fjárhagur lýðskóla og alþýðufræðslusamtaka hefur veikst í mörg ár.

Sjaldan brýnni þörf fyrir alþýðufræðslu en í langan tíma – niðurskurður er óumflýjanlegur.

Skýrslan, sem lögð er fyrir ríkisstjórnina ár hvert, beinist í ár sérstaklega að starfsskilyrðum alþýðufræðslunnar í samfélagi sem einkennist af farsóttum, átökum og mikilli verðbólgu.

Þrengingarnar stafa af auknum kostnaði og framlögum frá ríkinu sem hafa ekki fylgt þróun kostnaðar. Á árunum 2017 til 2026 jukust fjárframlög til lýðsskóla um 16 prósent, en verðbólga var 30 prósent. Á sama tíma hafa ríkisstyrkir til alþýðufræðslusamtaka lækkað um 500 milljónir  sænskra króna á milli áranna 2024 og 2026, eftir fyrri niðurskurð sveitarfélaga og héraða.

Skýrslan sýnir að þrengingar i efnahagslífinu hafa leitt til raunverulegra breytinga á rekstrinum. Nokkrir lýðskólar eiga á hættu að loka og árið 2025 varð lýðskóli gjaldþrota í fyrsta skipti í yfir 25 ár. Alþýðufræðslusamtök hafa neyðst til að skera verulega niður á landsbyggðinni þar sem viðburðum fækkaði um 20 prósent á milli áranna 2023 og 2024.

– Við erum í stöðu þar sem alþýðufræðsla er mikilvægari en nokkru sinni til að mæta brýnni þörf í samfélaginu sem alþýðufræðsla og alþýðufræðslusamtök geta og vilja gera. En efnahagsástandið þýðir að lýðskólar neyðast til að forgangsraða með harðari hendi þegar raunverulega þörf er fyrir vöxt, segir Anna-Karin Lindblom.

Lestu heildarmat Alþýðufræðsluráðsins hér á sænsku: folkbildningsradets-samlade-bedomning-2025.pdf

Få NLL’s nyhedsbrev

Med NLLs nyhedsbrev får du: Nyeste viden fra NLL som fx policy briefs og rapporter, vigtige nyheder fra de nordiske lande, aktuelle artikler, der går i dybden med feltet på tværs af sektorer, temaer og geografi samt overblik over kommende konferencer, seminarer og events.

Flere nyheder fra NVL

En lärare skriver på whiteboardtavlan framför elever i ett ljust klassrum.

29/06/2026

Island

Regeringen godkänner fortsatt arbete med tydligare ramverk för skolor på gränsen mellan skolnivåer. Regeringen behandlade i början av juni, förslagen från en arbetsgrupp som utrett privatdriven undervisning som befinner sig mellan gymnasie- och högskolenivå.

En kvinna bär ett litet barn i famnen på en solig äng i varmt kvällsljus.

26/06/2026

Island

I juni firades TINNAs tioårsjubileum. TINNAär en insats riktad till ensamstående föräldrar som står utanför arbetsmarknaden och har brottats med långvariga sociala svårigheter. Syftet är att stärka föräldrar i deras föräldraroll, förbättra livsvillkoren för dem och deras barn.

Maria do Carmo Gomes

24/06/2026

Europa

A yearly meeting place to discuss this important issue has been organised by the European Basic Skills Network (EBSN) in Lisbon 17-19 June 2026.

Share This