27/08/2024

Norge

Atvinnulíf, Iðn- og starfsmenntun

Samstarf fagskóla í Noregi um efni náms gengur vel

Norskir verkmenntaskólar eiga náið samstarf við atvinnulífið. Fyrirtækin upplifa samstarf við verkmenntaskóla einfaldara en samstarf við framhaldsskóla og háskóla. Stærstur hluti samstarfsins á sér stað í Fagráði um samvinnu við atvinnulífið sem stofnað var til. Að kennarar við verkmenntaskóla eru jafnframt tengdir fyrirtækjum á því sviði sem þeir kenna stuðlar einnig að því að námið er tengt atvinnulífinu.

Fagskoler i Norge scorer bra på samarbeid med arbeidslivet om utdanningsinnhold.

Samstarf fagskóla í Noregi um innihald námsins gengur vel.

Þetta er niðurstaða skýrslu sem Norræna stofnunin um nýsköpun, rannsóknir og menntun (NIFU) gaf út í lok maí, skýrslu um samstarf verkmenntaskóla við atvinnulífið. Skýrslan varpar einnig ljósi á hvort samstarfið stuðli að því að þeir sem hafa útskrifast úr verkmenntskólum fái starf við hæfi að loknu námi.

Eitt af markmiðum könnunarinnar var að komast að því hvernig samstarf iðnskóla og atvinnulífs og fyrirtækja í atvinnulífinu er háttað. Annað var að kanna hvort þeir sem ljúka náminu fái staf við hæfi að loknu námi. NIFU hefur kannað þetta með eigindlegri könnun í formi viðtala við starfsmenn sex verkmenntaskóla og 10 verknámsbrauta á sviði náms í:

  • tækni og upplýsingatækni
  • viðskipta- og stjórnun.
  • Skapandi greinum

Mynstrin sem komu fram í eigindlegum viðtölum voru greind með hliðsjón af megindlegum gögnum úr síðustu útskriftarkönnun NIFU (iðnskóla) um breytingaferlið úr námi í vinnu.

Helstu niðurstöður

Verkmenntaskólar eiga í nánu samstarfi við atvinnulífið. Fyrirtækin sem tóku þátt í viðtalinu eru mjög jákvæð í garð samstarfs við verkmenntaskóla og finnst það einfaldara en samstarf við framhaldsskóla og háskóla. Algengasta samstarfsformið er Fagráð um samvinnu við atvinnulífið, sem birtist sem viðmið atvinnugeira fyrir samstarf iðnskóla og atvinnulífsins. Annar árangursþáttur sem snýst að því að tryggja að inntak verknáms sé gagnlegt og uppfylli hæfniþarfir atvinnulífsins, er að margir kennaranna starfa samhliða kennarastarfinu á sama sviði sem þeir kenna.

NIFU finnur engin skýr tengsl á milli þess að verkmenntaskólar og atvinnulífsfyrirtæki hafi samstarf – og að útskriftarnemar úr skólunum fari í störf við hæfi. Að sögn NIFU er þátttaka útskriftarnema í verkmenntaskóla í verknámsskyldum störfum tengd öðrum skilyrðum.

Hægt er að lesa skýrsluna hér á norsku.

Få NLL’s nyhedsbrev

Med NLLs nyhedsbrev får du: Nyeste viden fra NLL som fx policy briefs og rapporter, vigtige nyheder fra de nordiske lande, aktuelle artikler, der går i dybden med feltet på tværs af sektorer, temaer og geografi samt overblik over kommende konferencer, seminarer og events.

Flere nyheder fra NVL

En lärare skriver på whiteboardtavlan framför elever i ett ljust klassrum.

29/06/2026

Island

Regeringen godkänner fortsatt arbete med tydligare ramverk för skolor på gränsen mellan skolnivåer. Regeringen behandlade i början av juni, förslagen från en arbetsgrupp som utrett privatdriven undervisning som befinner sig mellan gymnasie- och högskolenivå.

En kvinna bär ett litet barn i famnen på en solig äng i varmt kvällsljus.

26/06/2026

Island

I juni firades TINNAs tioårsjubileum. TINNAär en insats riktad till ensamstående föräldrar som står utanför arbetsmarknaden och har brottats med långvariga sociala svårigheter. Syftet är att stärka föräldrar i deras föräldraroll, förbättra livsvillkoren för dem och deras barn.

Maria do Carmo Gomes

24/06/2026

Europa

A yearly meeting place to discuss this important issue has been organised by the European Basic Skills Network (EBSN) in Lisbon 17-19 June 2026.

Share This