Til að bregðast við skotárásinni í Örebro áttu Johan Pehrsson menntamálaráðherra og Lotta Edholm skólamálaráðherra fund með fulltrúum yfirvalda, verkalýðsfélaga og samtökum atvinnurekenda 17. febrúar til að ræða öryggi, ógnir og ofbeldi í skólum.
– Ofbeldisverkið í Örebro var hræðilegt. Allir eiga að geta talið sig trygga og örugga í skóla: starfsfólk, nemendur og fullorðnir nemendur. Sænska ríkisstjórnin leggur nú kapp á að koma fram með tillögur um rannsóknir á öryggi í skólum, segir Johan Pehrson menntamálaráðherra.



