27/10/2025

Norge

Jöfn tækifæri, Menntastefna, Háskólamenntun

Í ár hefur stofnun háskóla- og færniþróunar (HK-dir) úthlutað rétt rúmum 50,5 milljónum evra, sem samsvarar rétt tæpum 600 milljónum norskra króna, til Erasmus+ verkefna.

Langstærsta pottinum eða, 43,5 milljónum evra, verður varið til verkefna um aukinn hreyfanleika gegnum allt námsferlið, en 7 milljónir evra fara til ýmissa samstarfsverkefna.

EU-flagget vaier i vinden mot en klar blå himmel.

600 milljóna framlög til Erasmus+ verkefna.

Auk þeirra sjóða sem HK-dir hefur umsjón með geta norskir aðilar sótt beint til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um svokölluð miðstýrð verkefni, þar sem samkeppnin er hörð við aðila um alla Evrópu. Norskar stofnanir hafa einnig öðlast ákveðinn sess á þessu sviði.

Norski tækniháskólinn í Þrándheimi, (NTNU) og Háskólinn í Vestur-Noregi hafa meðal annars orðið umsjónaraðilar tveggja nýrra verkefna innan Erasmus Mundus, og NTNU, Norski umhverfis- og náttúruvísindaháskólinn (NMBU) og Borgarháskólinn í Ósló (OsloMet) hafa orðið umsjónaraðilar verkefna á sviði þróunar á nýsköpun  háskólamenntunar til að mæta þörfum atvinnulífsins.

Undirbúningur fyrir næsta Erasmus+ áætlunartímabil, 2028–2034, er þegar hafinn. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt fram tillögu með áframhaldi margra núverandi aðgerða, en með skýrari pólitískum ramma og tillögu að fjárhagsáætlun upp á 40,8 milljarða evra.

Næsta tækifæri til að sækja um Erasmus+ styrki er um áramótin 2025/2026, með umsóknarfresti febrúar/mars 2026.

Hér má sjá hverjir hafa fengið styrki.

Få NLL’s nyhedsbrev

Med NLLs nyhedsbrev får du: Nyeste viden fra NLL som fx policy briefs og rapporter, vigtige nyheder fra de nordiske lande, aktuelle artikler, der går i dybden med feltet på tværs af sektorer, temaer og geografi samt overblik over kommende konferencer, seminarer og events.

Flere nyheder fra NVL

En lärare skriver på whiteboardtavlan framför elever i ett ljust klassrum.

29/06/2026

Island

Regeringen godkänner fortsatt arbete med tydligare ramverk för skolor på gränsen mellan skolnivåer. Regeringen behandlade i början av juni, förslagen från en arbetsgrupp som utrett privatdriven undervisning som befinner sig mellan gymnasie- och högskolenivå.

En kvinna bär ett litet barn i famnen på en solig äng i varmt kvällsljus.

26/06/2026

Island

I juni firades TINNAs tioårsjubileum. TINNAär en insats riktad till ensamstående föräldrar som står utanför arbetsmarknaden och har brottats med långvariga sociala svårigheter. Syftet är att stärka föräldrar i deras föräldraroll, förbättra livsvillkoren för dem och deras barn.

Maria do Carmo Gomes

24/06/2026

Europa

A yearly meeting place to discuss this important issue has been organised by the European Basic Skills Network (EBSN) in Lisbon 17-19 June 2026.

Share This