Norska ríkisstjórnin, ásamt Samtökum norskra iðnaðarmanna og Samtökum iðnaðarins í Noregi komið á laggirnar kerfi fyrir starfsmenn í iðnaði til að standa straum af kostnaði við að efla færni sína. Ríkisstjórnin ætlar að veita 100 milljónum norskra króna næstu fjögur á, en samtökin munu einnig leggja sitt af mörkum.
Kerfið mun auðvelda iðnaðarfyrirtækjum að gefa starfsmönnum frí til að sækja námskeið og annars konar hæfniþjálfun. Þetta er árangur af kjarasamningi verkalýðsfélaganna frá 2024, sem byggir á þeirri staðreynd að starfsmenn í greininni þurfa færni á tímum hraðrar tækniþróunar.
Bent er á að starfsmenn í iðnaði taki síður þátt í símenntun og þjálfun í samanburði við aðra geira og kerfið á að vera hvatning fyrir fyrirtækin til þess að mennta starfsfólk sitt. Geirinn sjálfur segir að bæði hæfni á sviðum eins og stafrænnar umbreytingar og sjálfvirkni séu lykilatriði í því að styrkja samkeppnishæfni.
Markhópurinn er fagfólk og starfsfólk með litla formlega hæfni og sjóðirnir eiga ekki að standa straum af þjálfun sem þegar er á ábyrgð vinnuveitanda. Sjóðirnir munu endurgreiða launakostnað fyrir allt að tvær vikur í fullu starfi fyrir hvern þátttakanda. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að kerfið sé skilvirkt og að umsóknarferli sé einfalt og verkefnið verður metið áður en kerfinu veriður virkt áfram.



