Efling símenntunar: Að styðja fólk í gegnum breytingar og tryggja aðgengi að leiðsögn og ráðgjöf á Norðurlöndum
???? Dagsetning og tími: Miðvikudagur, 1. október 2025, 14:00 – 17:00
???? Staðsetning: Grand Hotel, Reykjavík
???? Tungumál: Enska og íslenska
Norrænu samstarfs um símenntun (NLL), sem fjármagnað er af Norrænu ráðherranefndinni, er sönn ánægja að bjóða til sérstaks fundar um framtíð ráðgjafar (vejledning) á Norðurlöndum. Á fundinum verður skoðað hvernig ráðgjöf getur betur stutt fólk sem gengur í gegnum mismunandi umskipti/breytingar, hvort sem það er í menntun, atvinnu eða almennu lífi og til að tryggja aðgengilegar leiðir fyrir öll, sérstaklega þau sem þurfa mest á því að halda. Sérfræðiþekking þín og sjónarhorn mun hafa áhrif á vinnuáætlun NLL netsins um ráðgjöf fyrir fullorðna fyrir 2025–2027. Tilgangur fundarins er að hvetja til samræðna, deila reynslu og fá innsýn til að skerpa á áherslum í vinnu netsinsá norrænum vettvangi. Þessi fundur verður eingöngu með íslenskum hagaðilum og verður síðan fylgt eftir með netfundi hagaðila tengdum leiðsögn og ráðgjaföf frá öllum Norðurlöndum og sjálfsstýrðu svæðunum þann 29. október næstkomandi. Fundurinn 1. október er tilvalinn undirbúningur fyrir stærri fundinn.
Við bjóðum
???? Sérfræðingum í ráðgjöf, símenntun, menntamálum og þróun mannauðs.
???? Fulltrúum ríkisstofnana, rannsóknastofnana, menntastofnana og borgaralegra samtaka.
???? Leiðtogum starfsgreina og starfsráðgjöfum sem taka þátt í að efla færniþróun og námstækifæri.
Meðan á fundinum stendur munt þú:
✅ Skiptast á reynslu og dæmum við leiðandi sérfræðinga og stefnumótendur.
✅ Leggja þitt af mörkum til að móta áætlanir og styðja við væntanlegar niðurstöður úr frá sjónarhóli þíns lands.
✅ Nefna dæmi um viðeigandi afurðir sem netið getur ákveðið og forgangsraðað.
✅ Taka þátt í þverfaglegri umræðu til að takast á við núverandi áskoranir um hæfni og framtíðarþörf fyrir færni og mikilvægt hlutverk leiðsagnar og ráðgjafar.
✅ Efla norræna samvinnu og fagleg tengslanet sem styðja við símenntun.
Hvers vegna þátttaka þín skiptir máli
Sérþekking þín og sjónarhorn mun hafa áhrif á vinnuáætlun NLL netsins um ráðgjöf fyrir fyrir 2025–2027. Tilgangur fundarins er að hvetja til samræðna, deila reynslu og safna dýrmætri innsýn til að efla áframhaldandi starf netsins útfrá þeim ramma sem Norræna ráðherranefndin hefur ákveðið, en þar verður áhersla lögð á:
- Almenna starfshæfni
- Raunfærnimat á vinnumarkaði
- Ráðgjöf og græna umbyltingu
Við hlökkum til þátttöku þinnar.
Skráningarfrestur
???? til skráningar: 20. september 2025
???? Skráningarhlekkur: Setja inn hlekk hér
Nánari upplýsingar um norrænt samstarf um ráðgjöf fyrir fullorðna https://nll2026.webfar.eu/netvaerk/vejledning/
Nánari upplýsingar veitir:
Hrannar Baldursson
Umsjónarmaður NLL ráðgjafanetsins
hrannar@frae.is